Fréttir
SALA Á 10 HOLDAGRIPUM HJÁ NAUTÍS
![](https://www.bssl.is/wordpress/wp-content/uploads/2024/06/Leir-0075-IMG_1280-150x100.jpg)
Hér eru upplýsingar og lýsingar á þeim 10 Angus gripum sem eru til sölu hjá Nautís ásamt tilboðsblöðum og reglum um tilboðið. Um er að ræða 7 naut og 3 kvígur sem eru að verða 14 mánaða. Gripirnir verða afhentir að loknu útboði nema nautin sem eru í sæðistöku sem verða afhent þegar nægjanlegt magni af sæði hefur náðst úr þeim. Útboðið verður opnað 9. júlí nk. Nánari upplýsingar um gripina ásamt myndum af þeim birtast í Bændablaðinu sem kemur út 27. júní. Myndin er af Leir 75 en hann er einn af sonum Laurens av Krogdal sem er boðin til kaups.
Aðalfundur Nautís
![](https://www.bssl.is/wordpress/wp-content/uploads/2023/09/IMG_4640-150x100.jpg)
Aðalfundur Nautís verður haldinn fimmtudaginn 23. maí að Stóra Ármóti Flóahreppi og hefst kl 13:30
Dagskrá;
- Skýrsla stjórnar og framkvæmdastjóra
- Reikningar
- Kosningar
- Önnur mál
Á fundinn mætir Jón Hjalti Eiríksson LbhÍ og fjallar um skyldleikann í Nautís stofninum. Að fundi loknum er opið hús hjá Nautís
Stofnfundur Kornræktarfélags Suðurlands
![](https://www.bssl.is/wordpress/wp-content/uploads/2024/03/Korn-150x103.jpg)
Stofnfundur Kornræktarfélags Suðurlands verður haldinn í Frægarði Gunnarsholti miðvikudaginn 24. apríl og hefst kl 13:30. Tilgangurinn er að ná öllum þeim sem rækta korn og eða hafa áhuga á kornrækt og framgangi kornræktar saman í einn félagsskap. Stefnt er að stofnun kornsamlags síðar á árinu. Á fundinn mætir Hrannar Smári Hilmarsson tilraunastjóri LbhÍ og fer yfir það helsta sem er verið að vinna að í rannsóknum á kornyrkjum og fleiru sem snýr að kornrækt.