1. fundur haldinn 25. janúar 2019
Á fundinn sem haldinn var í fundarsal Búnaðarsambandsins mættu Erlendur Ingvarsson, Ragnar Lárusson, Gunnar Kr. Eiríksson. formaður, Sigurjón Eyjólfsson og Helgi Eggertsson. Sveinn Sigurmundsson sat fundinn og ritaði fundargerð. Á fundinn mætti einnig Ólafur Þór Þórarinsson undir liðnum staða fyrirtækjanna.
- Formannafundur.
Tillaga kom fram um Stóra Ármót sem fundarstað föstudaginn 15. febrúar. Farið verður yfir starfsemi BSSL, kynning á tilraun um þaramjöl. Greint frá vinnu við landgreiðslur og jarðabótaverkefni. Fréttir af vinnu um enduskoðun félagskerfisins, minna á væntanlegar Búnaðarþingsskosningar ofl.
- Staða fyrirtækjanna.
Þar kom fram að verulegt tap er á rekstri Kynbótastöðvarinnar en önnur fyrirtæki eru í jafnvægi.
- Kynbótastöð.
Samþykkt að hækka gjaldskrá. Bæði fyrir sæðingar og klaufsnyrtingu. Gripagjald sem innheimt er í kúasæðingunum úr 2900 kr á ári í 3500 kr á ári en á Austurlandi hækkar gjaldið á grip úr 4900 kr í 5500 kr. Klaufsnyrting hækkar úr úr 8500 kr/klst í 10 þús kr/klst. Komugjald í 25000 kr.
- Sauðfjársæðingar.
Sæddar 10.589 ær frá okkur og samdráttur á báðum stöðvum 10 þúsund ær á síðustu 2 árum. Tap varð á rekstri sauðfjársæðinga um 2,3 milljónir á síðasta ári. Samþykkt að taka sjóð þann sem er skráður á gömlu sauðfjársæðingastöðina og nota hann í rekstrinum.
- Sauðís.
Hugmynd um að stofna eitt fyrirtæki um rekstur sauðfjársæðinga á landinu sem var til umræðu á síðasta stjórnarfundi fer til umræðu á Vesturlandi í vor. Fagráð í sauðfjárrækt sýnir hugmyndinni áhuga og ætlar að kynna hana á ársfundi.
- Fræðsluferð til Noregs.
Starfsfólk sauðfjársæðingastöðvarinnar fór á dögunum að kynna sér sauðfjársæðingar í Noregi. Norðmenn hafa náð frábærum árangri með frysta að frysta hrútasæði og eru eingöngu með það.
- Breytingar á starfsliði.
Sigrún Helga Valdimarsdóttir hættir störfum við bændabókhald. Helga Sigurðardóttir er komin í veikindaleyfi. Unnið er að því að ráða nýjan starfsmann í stað Sigrúnar.
- Beiðni Rjómabúsins Baugsstöðum.
Rjómabúið Baugsstöðum biður um 100 þús kr styrk til að geta greitt reikninga vegna viðhalds sem var að skipta um járn á austurhliðinni. Stjórnin samþykkti það en telur eðlilegast að Byggðasafn Árnessýslu yfirtaki hlut Búnaðarsambandsins í safninu.
- Ársfundur BÍ Hótel Örk 8. mars.
Að þessu sinni verður ársfundur BÍ ásamt tilheyrandi kvöldskemmtun á Hótel Örk 8. mars.
- Aðalfundurinn.
Hann á að vera í Vestur-Skaftafellsýslu núna. Stjórnin lagði til að hann yrði í Hótel Dyrhólaey föstudaginn 12. apríl. Á aðalfundinum skal kjósa til Búnaðarþings. Fram kom að Sigurjón Eyjólfsson gefur ekki kost á sér til endurkjörs þar sem hann er að mestu hættur búskap.
- Fréttir frá Nautís.
Sveinn greindi frá stöðunni hjá Nautís en 12 kálfar fóru í einangrun 4. október og 9 mánaða einangruninni lýkur því í byrjun júlí. Þá er hægt að framkvæma sýnatöku og hefja sæðistöku úr nautunum þegar niðurstöður sýnatökunnar liggur fyrir. Dreifing á sæði mun hefjast næsta haust. Aðeins 11 kýr hafa fest fang nú í haust en svo virðist að 2 kýr sem voru úrskurðaðar með fangi hafi látið. Góður vöxtur er í kálfunum og sá sem mest þyngist er oft með 2kg vaxtaraukningu á dag.
- Undirritun fjárfestingastefnu í eignasafni Búnaðarsambandsins.
Ákveðið að fara með eignasafn Búnaðarsambandsins hjá Landsbankanum í varfærna fjárfestingarstefnu sem byggir á inneign í verðtryggðum skuldabréfum og ríkisskuldabréfum.
- Undirritun lóðarleigusamnings milli Nautís og Stóra Ármóts.
Til undirritunar var bæði lóðarleigu- og afnotasamningur af landi milli Stóra Ármóts og Nautís.
- Önnur mál.
Erlendur spurðist fyrir um hvort leitað hefði verið eftir samningi við Mast um þau verkefni sem Búnaðarsambandið sinnir fyrir þá. Það er gerður samningur til eins árs í senn um úttektir vegna jarðræktarstyrkja og landgreiðslna sem er endurskoðaður árlega í ljósi umfangs verkefnanna. Búnaðarstofa á í góðu sambandi við búnaðarsamböndin og rætt er um fleiri verkefni fyrir stofnunina eins og úttektir vegna fjárfestingastyrkja og jafnvel að yfirfara tölur um búfjárfjölda og uppskeru. Búnaðarsambandið er jákvætt út í fleiri verkefni en auðvitað þarf að fylgja fjármagn til að sinna því.
Fleira ekki og fundi slitið
Sveinn Sigurmundsson