5. fundur 2002
Stjórnarfundur Búnaðarsambands Suðurlands.
haldinn í fundarsal Búnaðarsambandsins 25. júní 2002
Mættir voru stjórnarmennirnir Þorfinnur Þórarinsson, Eggert Pálsson, Egill Sigurðsson, Guðmundur Stefánsson og Guðni Einarsson ásamt framkvæmdastjóra Sveini Sigurmundssyni.
- Rætt um breytingar á skrifstofuhúsnæðinu og tillögur sem borist hafa um nafn á húsnæðið.
- Guðmundur Jóhannesson ráðunautur skýrði frá undirbúningi sýningarinnar ,,KÝR 2002” í Ölfushöllinni laugardaginn 31.ágúst.
- Starfsemin:
- Mikil aukning var í kynbótasýningum hrossa í vor, þær taka mikinn tíma og mannskap og þarf að huga að því hvort hægt sé að koma meiri á meiri vinnuhagræðingu í kringum sýningarnar.
- Vaxandi eftirspurn er eftir þjónustu hjá Bændabókhaldinu og við því þarf að bregðast. Einnig þarf að endurskoða gjaldskrána. Umtalsvert áreiti var alltaf vegna gamla Búbótarforritsins. Stjórnin lítur svo á að þjónustu við nýja Búbótar-forritið beri Bændasamtökunum að greiða af innheimtum þjónustugjöldum sínum. Leitað verði eftir samningum þar um.
- Kúaskoðun hefur staðið yfir og er langt komin.
- Mikil aukning var í kynbótasýningum hrossa í vor, þær taka mikinn tíma og mannskap og þarf að huga að því hvort hægt sé að koma meiri á meiri vinnuhagræðingu í kringum sýningarnar.
- Fegurri sveitir: Búnaðarsamband Suðurlands er aðili að verkefninu ,,Fegurri sveitir”. Stjórnin leggur af gefnu tilefni áherslu á heilnæmt vatn í bithögum og þarf að kynna fyrir mönnum hvaða möguleikar eru fyrir hendi í þeim efnum.
Fleira ekki gert, fundargerð upplesin og samþykkt
Guðmundur Stefánsson,
fundarritari.