7. fundur 2007
Þann 19. október 2007 var haldinn stjórnarfundur BSSL á skrifstofu sambandsins.
Þessir voru mættir: Þorfinnur Þórarinsson, Egill Sigurðsson, Bjarni Hákonarson, Guðni Einarsson Ragnar Lárusson og Guðmundur Stefánsson. Einnig sat fundinn Sveinn Sigurmundsson framkvæmdastjóri.
Fyrir var tekið:
- Fram kom að klaufskurðarbásinn er kominn. Rafbúnaður er þrífasa, hentugast mun vera að fá rafstöð til að nota þar sem einfasa rafmagn er.
- Kynnt var tilboð Rangárbakka um svæði þeirra til afnota fyrir landbúnaðarsýninguna á næsta ári. Formanni og framkvæmdastjóra falið að ganga frá samningum. Ákveðið var að skipa Kjartan Ólafsson formann framkvæmdastjórnar. Ákveðið að hafa 7 manna sýningarstjórn og hafa svo 3 menn úr henni í framkvæmdastjórn.
- Farið yfir fyrirhugaða atburði afmælisársins. Ráðgerðar eru utanlandsferðir fyrir kúa-, hrossa- og sauðfjárbændur. Ákveðið að hafa formannafund í janúarlok og hafa hann með sérstökum blæ í tilefni afmælisársins.
- Bréf frá Auðhumlu þar sem kynntar eru hugmyndir um uppbyggingu kjarna fyrir landbúnaðartengda starfsemi og háskólastarfsemi.
- Skýrt frá stöðunni í undirbúningi afmælisritsins.
- Kynnt boð frá Búnaðarfélagi Rangárvallahrepps í 100 ára afmæli þess, 2. nóv.
- Lagt fram kostnaðaryfirlit um kynbótasýningar hrossa árið 2007 og kynntar tillögur fagráðs í hrossarækt um hækkun fyrir næsta ár.
- Kynnt yfirlit yfir ný lögbýli á Suðurlandi, en þeim hefur fjölgað mikið síðustu missiri.
- Sagt frá viðræðum við Selfossveitur um hitaveituvirkjanir í Stóra-Ármótslandi.
- Á fundinn kom Jóhannes Símonarson og kynnti túnkortagerð eftir þeim loftmyndum sem Bændasamtökin hafa keypt sér aðgang að.
- Á fundinn kom Kjartan Ólafsson og var rætt áfram um undirbúning landbúnaðarsýningar, sbr.lið 2.
- Farið yfir hauststörfin, sauðfjársýningar, jarðabótaúttekt, undirbúning sauðfjársæðinga og einnig bændabókhaldið og kúadóma.
- Kynnt bréf frá hestamannafélaginu Fáki þar sem fram kemur ósk um að kynbótasýningar verði teknar upp að nýju á þeirra svæði.
- Á fundinn kom Grétar H. Harðarson og ræddi um tilraunastarfið á Stóra-Ármóti. Í vetur verður haldið áfram með rannsóknir á áhrifum fóðrunar í geldstöðu á nyt og heilsufar eftir burð.
Fleira ekki fyrir tekið, fundargerð upplesin og samþykkt.
Guðmundur Stefánsson, fundarritari