Árangur sæðinga 2008
Niðurstöður sauðfjársæðinganna í desember 2008
Sæðingar sauðfjár eiga sér lengri sögu hér á landi en í flestum öðrum löndum. Þær hafa orðið sífellt veigameiri þáttur við dreifingu á besta erfðaefninu í stofninum á hverjum tíma. Ræktunarárangur vegna þessa starfs er mikill og augljós flestum fjárbændum.
Þessi starfsemi hefur aukist verulega á síðustu árum. Það sem hins vegar hefur vantað nokkuð er að fyrir hendi væru nægjanlega glöggar upplýsingar um árangur sæðinganna, þ.e. hve stór hluti sæddra áa festi fang og hve mörg lömb fæddust úr sæðingum. Í þessum efnum stöndum við ekki samanburð um samskonar starfsemi í nálægum löndum. Á síðustu árum hafa aðeins nákvæmar upplýsingar í þessum efnum verið fyrir hendi hjá Bsb. Austurlands. Á síðasta vori var því ákveðið að ráða bót á þessu með að byggja upp slíkt uppgjör í tengslum við skýrsluhald sauðfjárræktarinnar. Byggt var upp skráninga- og úrvinnslukerfi í FJARVIS.IS.
Dagbækur sæðingamanna frá í desember 2008 voru teknar til skráningar, en þegar á reyndi voru þessar upplýsingar misaðgengilegar hjá búnaðarsamböndunum en þó náðust til skráninga nokkuð yfir 90% sæðinganna eða samtals 27.306 sæðingar fyrir landið allt þegar þessar upplýsingar eru unnar. Þannig liggja nú fyrir miklu meiri upplýsingar um þessa starfsemi en áður hefur verið og verður aðeins gerð grein fyrir nokkrum niðurstöðum hér á eftir.
Þegar reiknaður er heildarárangur sæðinganna reynist hann sá að 60% ánna hafa fest fang og að meðaltali eru fædd 1,79 lömb hjá ánum sem bera. Þegar þetta er brotið frekar niður þá kemur í ljós að nokkuð yfir 80% allra sæðinga eru sæðingar hjá ósamstilltum ám með fersku sæði og því sá hópur sem eðlilegast er að skoða samanburð fyrir. Árangur þar er 62% og fædd 1,80 lömb að jafnaði. Nokkuð yfir þúsund ær eru sæddar með dagsgömlu sæði og þar hrapar árangur í 49%. Í töflu 1 er gefið yfirlit um umfang sæðinganna í einstökum héruðum og árangur þeirra í hverju þeirra.
Tafla 1. Fjöldi sæðinga í uppgjörinu úr hverju héraði og árangur þar sem sæddar eru ósamstilltar ær með fersku sæði.
Hérað |
Sæðingar |
Árangur |
Fædd lömb |
|
|
|
|
Gullbringa og Kjós |
308 |
64 |
1,74 |
Borgarfjarðarsýsla |
1270 |
58 |
1,83 |
Mýrasýsla |
1255 |
63 |
1,80 |
Snæfellsnes |
1580 |
66 |
1,75 |
Dalasýsla |
1854 |
60 |
1,85 |
Barðastrandarsýslur |
430 |
62 |
1,75 |
V-Ísafjarðarsýsla |
465 |
80 |
1,81 |
N-Ísafjarðarsýsla |
22 |
|
|
Strandasýsla |
717 |
61 |
1,82 |
V-Húnavatnssýsla |
1220 |
60 |
1,71 |
A-Húnavatnssýsla |
1495 |
51 |
1,72 |
Skagafjörður |
1933 |
60 |
1,78 |
Eyjafjörður |
870 |
56 |
1,81 |
S-Þingeyjarsýsla |
2132 |
65 |
1,81 |
N-Þingeyjarsýsla |
1342 |
59 |
1,80 |
N-Múlasýsla |
2142 |
58 |
1,80 |
S-Múlasýsla |
1222 |
57 |
1,78 |
A-Skaftafellssýsla |
1496 |
66 |
1,85 |
V-Skaftafellssýsla |
1752 |
70 |
1,85 |
Rangárvallasýsla |
1617 |
69 |
1,84 |
Árnessýsla |
2184 |
71 |
1,84 |
Á síðari árum hefur verulega dregið úr notkun á samstillingu gangmála hjá ám sem sæddar eru. Í uppgjörinu voru samt hartnær 2.600 samstilltar ær en árangur þeirra sæðinga var með öllu óviðunandi eða aðeins 45% að jafnaði.
Djúpfryst sæði hefur verið notað á nokkrum stöðum og einnig var í gangi all umfangsmikil tilraun síðasta vetur þar sem verið var að bera saman mismunandi blöndunarvökva fyrir frysta sæðið. Upplýsingar eru fyrir nokkuð yfir 1.400 sæðingar með frystu sæði en þar er árangur aðeins 47% og ekki fæðast nema 1,70 lömb að meðaltali hjá ánum sem bera.
Hrútarnir á stöðvunum eru mjög mismikið notaðir en tafla 2 gefur yfirlit um það en þar kemur einnig fram sæðingaárangur við notkun þeirra hvers og eins.
Tafla 2. Fjöldi sæðinga með einstökum hrútum sæðingastöðvanna og sæðingaárangur þeirra hvers og eins.
Hrútur |
Númer |
Fjöldi sæðinga |
Árangur |
Fædd lömb |
Fengur |
02-973 |
78 |
55 |
1,50 |
Lundi |
03-945 |
1013 |
68 |
1,84 |
Gráni |
03-957 |
332 |
69 |
1,82 |
Hyrnir |
03-958 |
47 |
78 |
1,89 |
Frakksson |
03-974 |
532 |
59 |
1,77 |
Máni |
03-975 |
245 |
72 |
1,78 |
Spakur |
02-976 |
40 |
82 |
2,04 |
Mókollur |
03-978 |
245 |
58 |
1,78 |
Eldur |
03-981 |
116 |
71 |
1,73 |
Geri |
03-986 |
78 |
74 |
1,93 |
Vorm |
03-988 |
332 |
65 |
1,79 |
Kaldi |
03-989 |
600 |
65 |
1,83 |
Smyrill |
04-800 |
567 |
60 |
1,88 |
Ás |
04-813 |
348 |
72 |
1,83 |
Bogi |
04-814 |
1632 |
51 |
1,70 |
Garpur |
04-815 |
686 |
61 |
1,79 |
Kjói |
04-816 |
815 |
57 |
1,80 |
Bramli |
04-952 |
435 |
63 |
1,81 |
Bobbi |
04-962 |
153 |
67 |
1,84 |
Papi |
04-964 |
507 |
66 |
1,89 |
Loftur |
04-970 |
79 |
62 |
1,85 |
Örvar |
04-983 |
322 |
64 |
1,71 |
Jón Páll |
04-990 |
107 |
84 |
1,93 |
Þróttur |
04-991 |
528 |
56 |
1,82 |
Cat |
04-992 |
283 |
63 |
1,80 |
Foss |
05-801 |
381 |
68 |
1,90 |
Garður |
05-802 |
494 |
61 |
1,80 |
Krókur |
05-803 |
958 |
63 |
1,82 |
Gotti |
05-804 |
886 |
69 |
1,86 |
Ylur |
05-805 |
712 |
61 |
1,79 |
Shrek |
05-817 |
404 |
59 |
1,78 |
Undri |
05-818 |
534 |
66 |
1,80 |
Kveikur |
05-965 |
1782 |
58 |
1,81 |
Raftur |
05-966 |
1569 |
66 |
1,80 |
Blettur |
05-967 |
190 |
68 |
1,82 |
Hvellur |
05-869 |
485 |
65 |
1,72 |
At |
06-806 |
1083 |
74 |
1,87 |
Púki |
06-807 |
1779 |
52 |
1,75 |
Olli |
06-985 |
329 |
64 |
1,73 |
Bifur |
06-994 |
569 |
60 |
1,83 |
Dropi |
06-998 |
242 |
66 |
1,86 |
Fannar |
07-808 |
920 |
62 |
1,78 |
Dökkvi |
07-809 |
936 |
55 |
1,77 |
Freyðir |
07-810 |
596 |
70 |
1,81 |
Mjöður |
07-811 |
912 |
71 |
1,85 |
Prjónn |
07-812 |
1366 |
63 |
1,79 |
Sæðingastöðvarnar sem annast dreifingu sæðisins eru tvær og þegar skoðaður er árangur sæðinga frá hvorri stöð þá kemur fram að sæðingaárangur var 58% frá Sauðfjársæðingastöð Vesturlands en 67% Sauðfjársæðingastöð Suðurlands. Þegar betur er að gáð virðist að vísu sem þarna hafi verulega áhrif, að á Vesturlandsstöðinni voru tveir mikið notaðir hrútar Bogi og Púki sem skila ótrúlega slökum sæðingaárangri eins og sjá má í töflu 2. Þessi áhrif hrútanna má að nokkru meta út frá djúpfrysta sæðinu þar sem það er allt framleitt á annarri stöðinni og virðast þau áhrif greinilega skýra stærri hluta munarins á milli stöðvanna, en hann verður að sjálfsögðu að sjást hverfa á næsta ári.
Mikill fjöldi sæðingamanna kemur að sæðingunum. Ljóst er að árangur þeirra sem eru með flestar sæðingar er talsvert umfram meðaltal. Það eru um 60 sæðingamenn sem eru með fleiri en 100 sæðingar og er árangur þeirra sæðingamanna á bilinu 37%-86%.
Þegar niðurstöðurnar eru skoðaðar eru nokkur atriði sem má benda á. Heildarniðurstöðurnar benda til þess að á síðustu árum muni ekki hafa gerst neinar jákvæðar breytingar hvað varðar sæðingaárangur. Við vitum að fyrir rúmum áratug var sæðingaárangur hér betri en í Noregi. Þar í landi hefur verið sterkur áróður fyrir því að bæta árangur og á árinu 2008 fór árangur yfir 80% við sæðingar með fersku sæði hjá þeim. Þetta ætti að verða okkur hvatning til að bæta árangur hér því að talsvert er að vinna, en okkur á að vera mögulegt að ná sama árangri og þeir og það hefur fjöldi bænda víða um land sýnt greinilega mörg undanfarin ár. Hér er um að ræða talsvert langan feril sem getur kallað á brotalamir víða. Árvekni í öllum ferlinum hjá öllum aðilum er því meginatriði.
Ljóst er að langsamlega stærsta breytileikann í árangri er samt að finna úti á búunum. Breytileiki á milli búa yfirskyggir allt annað og þess vegna alveg augljóst að aðgerðir til að bæta árangur verða öðru fremur að beinast að þáttum þar. Reynslan sem bú og sæðingamenn sem ár eftir ár eru að ná frábærum árangri er samt sá skóli sem þar er öðru fremur að leita í.
Þetta kerfi sem hér hafa verið kynntar niðurstöður úr verður nú notað í framtíðinni í stað dagbókar sæðingamanna eins og kynnt hefur verið bæði í hrútaskrá og í Bændablaðinu. Skráning sæðinganna strax þegar þær eru gerðar gerir mögulegt að tengja þær skráningum fjárræktarinnar og þannig fá fullkomið yfirlit um árangur starfsins. Þannig á að vera mögulegt að birta strax á næsta hausti fullkomið yfirlit um árangur þeirra sæðinga, sem bændur hafa verið að gera í fjárhúsum sínum um allt land á síðustu dögum.
/JVJ