Ómmælingar
| Eitt mikilvægasta hjálpartæki Búnaðarsambandsins í ráðgjafastarfi í sauðfjárrækt er ómsjáin en með henni er mæld þykkt bakvöðva og fitu á baki. Rannsóknir hafa sýnt að ómsjármæling er mjög öruggur mælikvarði á vöðvafyllingu og fitusöfnun. Með ómsjármælingu ásamt mati á síðufitu og lærum er hægt að spá fyrir um 93,5% breytileka vöðvamagns skrokksins. Þetta starf hefur nú þegar skilað verulegum árangri til bættra kjötgæða. |
Þetta er mælt | Mynd af hrygg úr ómsjá | |
Vöðvalögun
Dæmi um mismunandi vöðvalögun | Lögun vöðva í ómmælingu Haustið 1999 var byrjað að gefa einkunn fyrir lögun ómvöðva. Með lögun er átt við hve vel vöðvinn heldur lögun eða breidd sinni út á þverþornið. Gefin er einkunn frá 1 og upp í 5. Skalinn er eftirfarandi:
| |
Á myndinni hér fyrir ofan má sjá dæmi um mismunandi lögun vöðva. Vöðvinn hægra megin í hryggnum er dæmi um illa lagaðan vöðva sem stigast myndi upp á 1-2. Vöðvinn vinstra megin myndi stigast upp á 4-5 enda heldur hann lögun eða breidd sinni mun betur út á þverþornið. Eins og sjá má gefur stigun fyrir vöðvalögun góða vísbendingu um flatarmál vöðvans. |