Viðmiðunarverð kindakjöts haustið 2008
Stjórn Landssamtaka sauðfjárafurða hefur ákveðið lágmarksverð sauðfjárafurða fyrir árið 2008. Viðmiðunarverðskráin hækkar verð á öllu dilkakjöti til sauðfjárbænda að lágmarki um 98 kr. frá reiknuðu meðalverði sláturleyfishafa haustið 2007. Verð fyrir kjöt af fullorðnu hækkar að lágmarki hlutfallslega jafn mikið. Vegið meðalverð á dilkakjöti til bænda var kr. 363 pr. kg haustið 2007 skv. verðskrám sláturleyfishafa og niðurstöðum kjötmats. Í töflunni sem stjórn LS samþykkti hækkar verðið miðað við sömu forsendur í kr. 461 eða um 98 kr. eins og aðalfundur LS samþykkti. Kjöt til útflutnings hækkar sömuleiðis um 98 kr. eða upp í kr. 335. Kjöt af fullorðnu hækkar hlutfallslega. Mesta hækkun er 81 kr. (VR 3) en sú minnsta 9 kr (VHR 4).
Miðað við framangreindar forsendur má sjá viðmiðunarverð LS haustið 2008 í eftirfarandi töflu: