Sauðburður í Landbroti
![](https://www.bssl.is/wordpress/wp-content/uploads/2013/05/fjorlembingar-landbroti-300x224.jpg)
Á bænum Þykkvabæ í Landbroti er sauðburður kominn á fullt skrið. Á dögunum komu í heiminn fjórlembingar undan sæðishrútnum Grámanni frá Bergsstöðum og Gránu gömlu. Helga Jónsdóttir í Þykkvabæ sendi okkur þessa skemmtilegu mynd, en fjórlembingarnir eru allir golóttir (upp á skaftfellsku) eða botnóttir eins og víðar er talað um.