Kynbótasýning Víðidal
![](https://www.bssl.is/wordpress/wp-content/uploads/2013/05/hross_Aesa_Flekkudal-300x199.jpg)
Sýningin í Víðidal í Reykjavík hefst mánudaginn 13. maí kl. 07:50 með mælingum, dómar hefjast kl. 08:00. Yfirlitssýning verður síðan þriðjudaginn 14. maí og hefst kl. 09:30. Á heimasíðu RML www.rml.is er að finna röðun hrossanna. Ætlast er til þess að knapar mæti með hrossin í byggingardóm í þeirri röð sem þau eru á listanum. Minnum á að lokaskráningardagur á kynbótasýninguna í Hafnarfirði er næstkomandi föstudag 10. maí. Nánari upplýsingar um kynbótasýningar má finna á slóðinni www.rml.is.
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins