Verðlækkanir á kjarnfóðri í maí
![](https://www.bssl.is/wordpress/wp-content/uploads/2013/05/kjarnfodur_og_kyr.jpg)
Seljendur kjarnfóðurs hafa nú í maí lækkað verð á kjarnfóðri til bænda. Lífland reið á vaðið en Fóðurblandan, Lífland, SS og Bústólpi komu svo í kjölfarið. Á vef LK naut.is má finna verðlista kjarnfóðurs frá 15. maí 2013.