Álftin gerir bændum um land allt lífið leitt.
Í fréttum Stöðvar 2 í gær var viðtal við Höskuld Gunnarsson bústjóra á Stóra-Ármóti. Í viðtalinu vakti Höskuldur athygli á ágangi álfta á tún og nýræktir og hversu mikið hún eyðileggur. Víða eru mikla búsifjar af áti og traðki álfta og hún fær óhindrað að eyðileggja tún fyrir bændum og þeir orðnir langþreyttir á ástandinu. Bændur hafa reynt að fá leyfi til að skjóta álftina en fengið synjun, enda hefur álftin verið friðuð frá 1913.
Hér fyrir neðan er slóð á visir.is til að sjá fréttina í heild sinni og myndbrot.