Stór réttarhelgi á Suðurlandi
![](https://www.bssl.is/wordpress/wp-content/uploads/2013/05/arnessysla_hrunaafrettur1-300x182.jpg)
Nú um helgina verður réttað á nokkrum stöðum á Suðurlandi og er því vel hægt að tala um stóru réttarhelgina. Af þeim sökum má gera ráð fyrir umferðartöfum víða og eru ökumenn beðnir að sýna sérstaka aðgát og tillitssemi. Í dag verða nýjar Hrunaréttir í Hrunamannahreppi, vígðar af sr. Eiríki Jóhanssyni í Hruna, svo eru það Skaftholtsréttir í Gnúpverjahreppi. Á morgun verður réttað Grafarrétt í Skaftártungu, Reykjarétt á Skeiðum og Tungnaréttum í Biskupstungum. Á sunnudaginn verður svo réttað í Laugarvatnsrétt á Laugarvatni og á mánudag í Fljótshlíðarrétt í Fljótshlíð.