Er áburður að lækka í verði?
![](https://www.bssl.is/wordpress/wp-content/uploads/2013/05/aburdur_blanda.jpg)
Á vef Landsambands kúabænda naut.is er áhugaverður pistill um hugsanlega lækkun á áburðarverði á komandi mánuðum. Þar er vísað til þess að verð á hráefnum til áburðargerðar, svo sem úrea og fosfór hefur lækkað verulega á síðustu misserum. Það er því spurning hver þróunin verður í áburðarverði á komandi mánuðum og vert að fylgjast með því vel.
Nánar á naut.is „Hráefni til áburðargerðar lækkað verulega“