Kornskurður á Stóra-Ármóti
![](https://www.bssl.is/wordpress/wp-content/uploads/2013/10/Armot_kornþreskin_2013-300x224.jpg)
Korn á Stóra-Ármóti var loksins þreskt í dag eftir langvarandi vætutíð. Uppskera er léleg og langt undir meðalári, alls var sáð í 18 hektara. Uppskerutölur verða birtar eftir helgi. Ljóst er að breyting verður á fóðri mjólkurkúa á Stóra-Ármóti á komandi vetri, enda hefur byggið verið umtalsverður hluti af fóðri þeirra síðustu ár.
Hér má sjá nokkrar myndir sem teknar voru af kornakrinum á Stóra-Ármóti í september og nú í dag.