Gæðastýring í sauðfjárrækt námskeið í haust
![](https://www.bssl.is/wordpress/wp-content/uploads/2013/05/gaedastyring_saudfe_kubbur.jpg)
Námskeið í gæðastýringu í sauðfjárrækt verða haldin í haust ef næg þátttaka fæst. Fyrirhugað er að halda fjögur námskeið, það fyrsta 11. nóvember á Hvanneyri, þá 12. nóvember á Stóra-Ármóti í Flóa, svo 13. nóvember í Búgarði á Akureyri og það síðasta 14. nóvember Bsb. Austurlands, Egilsstöðum. Skráning er á netfangið bella@rml.is