Veffræðsla LK – Fyrsta árið að baki hjá RML
Fyrsta árið að baki hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins ehf er níundi fyrirlesturinn á þessum vetri. Fyrirlesari er Karvel Lindberg Karvelsson, framkvæmdastjóri Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins ehf. Áætluð birting á þessum fyrirlestri er 20. janúar.
Veffræðsla Landssambands kúabænda er nú send út á sínu öðru tilraunaári verkefnisins, en síðasta ár gekk vonum framar. Hægt er að hlusta aftur og aftur á erindin eftir að þau hafa verið birt. Rétt er að minna á að allir sem hafa áhuga geta fengið lykilorð og þannig aðgengi að bæði nýjum fyrirlestrum og þeim sem við sendum út í fyrra. Til þess að fá lykilorð þarf einungis að senda tölvupóst á netfangið skrifstofa@naut.is með nafni og heimilisfangi.
Nánar á naut.is