Veffræðsla LK – Nautin 2014 og ræktunarstarfið
Nautin 2014 og ræktunarstarfið er tíundi fyrirlesturinn á þessum vetri. Fyrirlesari er Guðmundur Jóhannesson, ábyrgðarmaður nautgriparæktar hjá Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins ehf. Áætluð birting á þessum fyrirlestri er 3. febrúar 2014
Veffræðsla Landssambands kúabænda er nú send út á sínu öðru tilraunaári verkefnisins, en síðasta ár gekk vonum framar. Hægt er að hlusta aftur og aftur á erindin eftir að þau hafa verið birt. Rétt er að minna á að allir sem hafa áhuga geta fengið lykilorð og þannig aðgengi að bæði nýjum fyrirlestrum og þeim sem við sendum út í fyrra. Til þess að fá lykilorð þarf einungis að senda tölvupóst á netfangið skrifstofa@naut.is með nafni og heimilisfangi.
Nánar á naut.is