Kvótamarkaður í mjólk

Við minnum á að næsti kvótamarkaður með greiðslumark í mjólk fer fram þann 1.apríl 2014. Kaup- og sölutilboðum þarf að skila til Matvælastofnunar fyrir þann 25. mars n.k. Þeir sem hyggjast kaupa eða selja á greiðslumark ættu að kynna sér leiðbeiningar vel og athuga að útvega öll fylgigögn í tíma.

Með sölutilboði skal fylgja:
• Veðbókavottorð til staðfestingar á eignarhaldi lögbýlis.
• Eftir atvikum staðfesting á að ábúandi eða leigutaki lögbýlis sé tilboðsgjafi.
• Samþykki eiganda/eigenda lögbýlis sé sá eða þeir ekki seljandi/ur og geiðslumarkið ekki sérskráð. 
• Samþykki þinglýstra veðhafa.

 

Með kauptilboði skal fylgja:
• Bankaábyrgð fyrir greiðslu á greiðslumarki í samræmi við ofanritað tilboð eða bankaávísun fyrir tilboðsfjárhæð.
• Þinglýsingarvottorð til staðfestingar á eignarhaldi lögbýlis.
• Eftir atvikum staðfesting á að ábúandi / leigutaki lögbýlis sé tilboðsgjafi.

 

Sjá nánar:
Aðilaskipti að greiðslumarki mjólkur


back to top