Minkabúið Mön – opið hús
Minkabúið Mön var með opið hús um liðna helgi en bændurnir í Mön, þau Stefán og Katrín, opnuðu þá enn á ný dyrnar að minkaskálum sínum til að kynna almenningi minkarækt á Íslandi. Gaman var að sjá góða samstöðu og samvinnu minkabænda á Suðurlandi sem aðstoðuðu þau hjónin við kynninguna. Kynningin var góð fyrir unga sem aldna því þarna var hægt að komast í nánari snertingu við dýrin og sjá hin fjölbreyttu litaafbrigði, auk þess sem minkabændurnir voru áhugasamir við að kynna greinina og ræða málin. Starfsmenn minkabúsins voru í flottum „vinnufötum,“ litríkum Hensongöllum sem ef til vill vísa til lags Pollapönks, Enga fordóma, en með því að upplýsa fólk þá minnka fordómar. Meðfylgjandi myndir voru teknar í Mön.