Veffræðsla LK – Að loknum haustfundi LK
Að loknum haustfundi LK er fjórða erindi vetrarins. Þar mun Baldur Helgi Benjamínsson framkvæmdastjóri Landssambands kúabænda greina frá því helsta. Áætluð birting á þessu erindi er 17. nóvember 2014.
Veffræðsla Landssambands kúabænda er nú send út þriðja árið í röð. Tilraunaárin tvö eru liðin og ánægjan það mikil að ákveðið var að halda áfram. Hægt er að hlusta aftur og aftur á erindin eftir að þau hafa verið birt. Rétt er að minna á að allir sem hafa áhuga geta fengið lykilorð og þannig aðgengi að bæði nýjum fyrirlestrum og þeim hafa verið sendir út. Til þess að fá lykilorð þarf einungis að senda tölvupóst á netfangið skrifstofa@naut.is með nafni og heimilisfangi.
Nánar á naut.is