Sauðfjárræktarfundur á Smyrlabjörgum
Haustfundur sauðfjárræktarinnar fimmtudaginn 20. nóvember á Hótel Smyrlabjörgum kl.20.00.
Fanney Ólöf Lárusdóttir fer yfir hauststörfin. Sveinn Sigurmundsson fjallar um starfsemi Sauðfjársæðingastöðvar Suðurlands og hrútakostinn. Páll Stefánsson dýralæknir fjallar um fanghlutfall, frjósemi og lungnasjúkdóma í sauðfé. Endað verður á verðlaunaveitingum hrúta eftir kaffihlé. Verðlaun fyrir lambhrúta eru gefin af Fóðurblöndunni og Blup-verðlaun eru gefin af Jötunn vélum ehf.
Kaffiveitingar í boði Sláturfélags Suðurlands og Búnaðarsambands Suðurlands
Nýútgefinni HRÚTASKRÁ verður dreift á fundunum
Sauðfjárræktarfólk hvatt til að mæta.