Fagráðstefna sauðfjárrækarinnar í beinni
![](https://www.bssl.is/wordpress/wp-content/uploads/2013/05/logo_ls11.gif)
Í dag hefst fagráðstefna sauðfjárræktarinnar í ráðstefnusalnum Heklu á Hótel Sögu (kl.14.30). Ráðstefnunni verður streymt á netinu fyrir þá sem ekki geta sótt hana. Þetta kemur frá á vef Landssamtaka sauðfjárbænda saudfe.is, en ráðstefnan er í tengslum við aðafund samtakana sem stendur nú yfir. Dagskrá ráðstefnunar sem ber yfirskriftina „Beitarstjórnun og sníkjudýravarnir á sauðfjárbúum – sóknarfæri í aukningu afurða“ má nálgast á saudfe.is.