Bændafundur BÍ um gerð búvörusamninga
![](https://www.bssl.is/wordpress/wp-content/uploads/2013/05/bi1.gif)
Bændasamtök Íslands boða til fundar í kvöld á Árhúsum kl. 20.30 til að kynna stöðuna í gerð búvörusamninga. Viðræður bænda við ríkisvaldið hafa staðið yfir frá því í haust en mörg útfærsluatriði nýrra samninga eru enn í vinnslu. Farið verður yfir stöðu mála og í kjölfarið verða umræður.