Sæðistökuvertíð lokið
Sæðistökuvertíð lauk nú 21. desember og voru Skógahrútarnir mest notaðir, en þetta var 48. sæðistökuvertíðin frá því að Sauðfjársæðingastöð Suðurlands hóf starfsemi sína árið 1968.
Fyrstu dagarnir voru rólegir. Bæði var mikil ótíð og svo höfðu margir að orði að kalda vorið úi í fyrra sæti í þeim. Þegar á leið jókst þátttakan og þegar upp var staðið var aðeins meira sæði sent út en í fyrra eða sæði í 22.425 ær á móti 22.250 ám í fyrra. Sæðistakan gekk vel framan af en þyngdist verulega þegar leið á tímabilið. Hrútarnir Bósi frá Þóroddstöðum og Ofsi frá Ásgarði gáfu ekkert nothæft sæði, en margir fjárbændur höfðu hug á að nota Bósa þar sem hann er þekktur að því að gefa góðar ær. Bósi var einnig frábær sæðisgjafi og því mikil eftirsjá í honum. Álagið varð því enn meira á vinsælustu hrútana og sumir þeirra þoldu það illa er leið á einkum Dreki frá Hriflu og Spotti frá Árbæ en ekki var hægt að anna eftirspurn úr þeim. Þeir hrútar sem voru með mest af útsendu sæði koma hér í röð.
- Grímur frá Ytri-Skógum 2360 ær
- Saumur frá Ytri- Skógum 2050 ær
- Dreki frá Hriflu 1960 ær
- Spotti frá Árbæ 1410 ær
- Burkni frá Mýrum 1360 ær
- Bekri frá Hesti 1315 ær
- Borkó frá Bæ 1285 ær
- Hvati frá Hesti 1250 ær
Munið að skila sæðingabrúsum sem fyrst og láta vita um fjölda sæddra áa og skrá sæðingarnar í Fjárvís sem fyrst. Að lokum eru fjárbændum þökkuð ánægjuleg samskipti og þeim óskað jólafriðar og farsældar á nýju ári.