Heimsókn á Stóra-Ármót
![](https://www.bssl.is/wordpress/wp-content/uploads/2016/09/20160926_140349minni-300x176.jpg)
Nú í vikunni kom Þóroddur Sveinsson kennari við Landbúnaðarháskóla Íslands með nemendur frá skólanum í heimsókn á Stóra-Ármót. Þetta voru 15 nemendur sem hófu nám í Búvísindum í haust, áfanginn sem Þóroddur kennir heitir Inngangur að búvísindum og í þeim áfanga eru vettvangsferðir hluti að náminu. Hrafnhildur Baldursdóttir fræddi nemendur um tilraunastarfið og gengu svo um húsin og skoðuðu staðinn. Meðfylgjandi myndir tók Þóroddur í heimsókninni.