Angus kvígurnar hjá Nautís sæddar
![](https://www.bssl.is/wordpress/wp-content/uploads/2020/09/Angus-kvigurnar-2019-300x200.jpg)
Í vor voru Angus kvígurnar frá 2018 sæddar með Jens av Grani 74061. Það hefur verið staðfest fang í þeim en 5 kvígur af 7 héldu við fyrstu sæðingu. Í september hófust svo sæðingar á kvígunum sem fæddar eru 2019. Þær eu þroskamiklar og vóg ein þeirra 538 kg tæplega ársgömul. Nú eru þær 14 mánaða og á myndinni sem fylgir hér með raða þær sér upp. Það er því von á 13 kálfum undan Jens av Grani næsta ár festi þessar kvígur fang.