Snemma beygist krókurinn
![](https://www.bssl.is/wordpress/wp-content/uploads/2021/09/Janssen-300x200.jpg)
Næstu daga verða þeir 16 Angus kálfar sem eru til á Nautís fluttir í 9 mánaða einangrun. Til eru 6 naut og 10 kvígur. Elstu kálfarnir fæddust í lok febrúar og er því orðið tímabært að taka þá undan. Yngstu kálfarnir eru um mánaðargamlir og munu þeir verða fluttir með mæðrum sínum í einangrunina. Á meðfylgjandi mynd má sjá fjögurra mánaða nautkálf Jansen nr 39 sýna góða tilburði.