Skil á haustskýrslum í síðasta lagi 20. nóvember
Skila þarf haustskýrslu í Bústofni eigi síðar en 20. nóvember 2021. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur opnað fyrir skráningar á haustskýrslum fyrir árið 2021 í Bústofni. Í samræmi við 10. gr. laga um búfjárhald nr. 38/2013, er öllum umráðamönnum búfjár skylt að skila árlega rafrænni haustskýrslu í Bústofni, eigi síðar en 20. nóvember. Í haustskýrslunni skal koma fram fjöldi ásetts búfjár af hverri tegund, allt búfé í hagagöngu og á hvaða jörð eða landspildu það er. Einnig skal koma fram gróffóðuruppskera af hefðbundnum nytjatúnum og leigutúnum og fyrningar, auk upplýsinga um aðra fóðuröflun og landstærðir. Minnt er á að skilyrði fyrir stuðningsgreiðslum í landbúnaði eru fullnægjandi skil á haustskýrslu. Skráning í Bústofn er með rafrænu skilríki eða Íslykli. RML veitir aðstoð við skil haustskýrslna.