Sæðistöku hjá Nautís 2022 lokið
![](https://www.bssl.is/wordpress/wp-content/uploads/2022/08/Joakim-34_6642_nota-300x200.jpg)
Sæðistaka úr Angus holdanautunum frá 2021 hefur staðið yfir frá því í júní. Tvö nautanna voru góð í sæðistöku og náðust rúmlega 3000 skammtar úr þeim. Þetta eru nautin Jóakim 21403 en úr honum náðust 1600 skammtar og Jenni 21405 sem gaf 1750 skammta. Dreifing á þessu sæði er hafin.
Á myndinni má sjá Jóakim 21403 en hann er undan norska úrvalsnautinu Jens av Grani 74061