Bústjóri Nautís

Davíð Ingi Baldursson Ármótsflöt hefur verið ráðinn sem bústjóri Nautís og hefur þegar tekið til starfa. Davíð er frá Litla Ármóti, er húsasmiður að mennt og hefur starfað við það síðustu ár. Hann hefur einnig sinnt afleysingum hjá Nautís. Um leið og Davíð er boðinn velkominn til starfa eru Sigurbirni Kjartanssyni sem lét af störfum að eigin ósk þökkuð vel unnin störf.


back to top