Félagsráðsfundur FKS 18. des. 2001
Mjólkuruppgjör 2000/2001
Félagsráð Félags kúabænda á Suðurlandi fjallaði á fundi sínum 18 des. sl. um mjólkuruppgjör síðasta verðlagsárs og mál því tengdu. Samþykkt var eftirfarandi ályktun:
“Félagsráð Félags kúabænda á Suðurlandi telur brýnt að fylgt sé fast eftir þeim reglum sem gilda eiga, um innvigtun mjólkur og útdeilingu beinna greiðslna. Jafnframt er lýst yfir áhyggjum með að uppi skuli vera lögfræðileg álitamál um fyrirkomulag þessara mála. Félagsráð óttast að málaferli af þessu tagi kunni að rýra traust almennings á því fyrirkomulagi sem mjólkurframleiðendur búa við og skaða ímynd stéttarinnar út á við. Einnig hafa þessi mál vakið upp spurningar um stöðu Bændasamtakanna sem í þessu máli gegnir hlutverki stjórnvalds, gagnvart umbjóðendum sínum. Félagsráðið telur óhjákvæmilegt að farið verði gaumgæfilega ofan í þessi mál og þess freistað að skapa um þau frið og traust milli aðila. Hér að neðan er bent á nokkkur atriði sem Félagsráðið telur brýnt að verði skoðað sérstaklega:
- Að öll mjólk frá framleiðendum sé innvigtuð með rafrænum hætti við dælingu í mjólkurbíl.
- Að löggiltir endurskoðendur mjólkursamlaganna staðfesti uppgjörstölur.
- Skoða þarf hvort auka eigi svigrúm í tilfærslum milli framleiðenda innan verðlagsára, með því að opna fyrir kvótaleigu . Þó með ákveðnum skilyrðum og að hámarki 5 – 10 %.
- Til að minnka spennu í viðskiptum með greiðslumark, verði lokasöludagur á greiðslumarki færður til loka júlí vegna viðkomandi verðlagsárs.
- Mikilvægt er að fyrir liggi með skýrum hætti, hver fer með ráðstöfun greiðslumarks ríkisjarða ef framleiðsla fellur niður við lok ábúðar eða með öðrum hætti. Eðlilegast væri að greiðslumarki í eigu ríkisins, sem losnar með þessum hætti úr framleisðlu yrði deilt út, eða þá selt á almennum markaði.
- Athugað verði sérstaklega hvort eðlilegt sé að Bændasamtökin hafi með höndum framkvæmd búvörusamninga.
- Mikilvægt er að allir málsaðilar staðfesti sameiginlega þann skilning sem að lagður er í uppgjörsreglurnar og þær séu tryggilega kynntar fyrir bændum árlega.
Stjórn Félags kúabænda á Suðurlandi
Sigurður Loftsson, Jóhann Nikulásson, Valdimar Guðjónsson.
Tillagan var send Framkvæmdanefnd búvörusamninga, Landbúnaðarráðuneyti, LK, SAM, og BÍ.
Skipulag kennslu, rannsókna og ráðgjafaþjónustu Félag kúabænda á Suðurlandi
Á fundi sínum 18. des s.l. fjallaði félagsráð Félags kúabænda á Suðurlandi um skipulag kennslu, rannsókna og ráðgjafaþjónustu í nautgriparækt.
Félagsráðið leggur áherslu á mikilvægi eftirtalinna atriða til framtíðar litið:
Tillagan send stjórn LK; BÍ, RALA og Landbúnaðarháskólanum Hvanneyri í janúar.