1. fundur 2001
Þann 16. janúar 2001 var haldinn stjórnarfundur í Stóra- Ármóti ehf.
Allir stjórnarmenn mættir ásamt framkvæmdastjóra.
- Sveinn fór yfir rekstur búsins, sem hefur gengið vel.
- Rætt var um breytingar sem þarf að gera á lögum um Stóra-Ármót til þess að möguleiki sé á samstarfi við aðra aðila á rannsóknar- og kennslusviði. Unnið er að því að útbúa gæðahandbók til að starfa eftir á Stóra- Ármóti.
- Gengið var frá skuldabréfi vegna lántöku að upphæð 1.860 þúsund kr. v / mjaltakerfis og mjaltaaðstöðu, hjá Lánasjóði landbúnaðarins og skrifaði stjórnin undir skuldabréfið f.h. Stóra- Ármóts ehf. sem lántaki.
Guðmundur Stefánsson
fundarritari