Úrslit í ljósmyndakeppni BSSL og TRS 2007
Í dag voru afhent verðlaun fyrir bestu ljósmyndirnar í ljósmyndakeppni BSSL og TRS 2007. Fyrstu verðlaun hlaut Jóhanna S. Hannesdóttir í Stóru-Sandvík fyrir myndina „Skuggaleg Skjalda“. Í öðru sæti lenti Magnús Hlynur Hreiðarsson á Selfossi og í þriðja sæti Jónas Erlendsson í Fagradal.
![]() |
Guðmundur Jóhannesson hjá BSSL, Magnús H. Hreiðarsson, Jónas Erlendsson og Ragnhildur Harðardóttir hjá TRS. |
Verðlaun voru gefin af BSSL og TRS þannig að TRS gaf Canon PowerShot G7 myndavél í 1. sætið og 500 Gb utanáliggjandi harðan disk í annað sætið en BSSL gaf Lowepro myndavélarbakpoka í þriðja sætið.
BSSL og TRS þakka öllum fyrir þátttökuna um leið og við óskum verðlaunahöfum til hamingju með árangurinn.
Röð 10 bestu myndanna er eftirfarandi:
![]() | 1. sæti Skuggaleg Skjalda Jóhanna S. Hannesdóttir |
![]() | 2. sæti Ég var að koma í heiminn Magnús Hlynur Hreiðarsson |
![]() | 3. sæti Smalað á jökli Jónas Erlendsson |
![]() | 4.-5. sæti Rúlluhirðing Jóna Sigþórsdóttir |
![]() | 4.-5. sæti Margt býr í kýrhausnum Ásta Þorbjörnsdóttir |
![]() | 6.-7. sæti Guffi Aldís Jónsdóttir |
![]() | 6.-7. sæti Hestar Aldís Jónsdóttir |
![]() | 8. sæti Guffi Karen Jónsdóttir |
![]() | 9. sæti Brosað í heyskapnum Jónas Erlendsson |
![]() | 10. sæti Sólarlag í sveitinni Kristín Ólafsdóttr |