ALLT ER ÞAÐ GOTT SEM AF KORNI KEMUR
Félagið Matur-saga-menning býður til fundar um kornrækt og kornneyslu fyrr og nú. Kornrækt hefur aukist á Íslandi og margar nýjungar komið fram.
Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 23. febrúar kl. 20:00 – 22:00 í Matvís, Stórhöfða 31 110 Rvk, aðkoma að neðanverðu við húsið.
Framsögumenn eru:
Jónatan Hermannsson – Kornrækt fyrr og nú.
Eymundur Magnússon í Vallanesi – Kornrækt, framleiðsla og sala á vörum úr korni.
Reynir Þorleifsson bakarameistari – Bakstur úr korni, möguleikar, tíska og hollusta.
Að loknum framsögum verða almennar umræður.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir; ókeypis aðgangur.
Félagið, Matur-saga-menning
www.matarsetur.is
Facebook: matur saga menning