7. fundur 2009 – haldinn 17. desember
Fundinn sem haldinn var Selfossi sátu; Guðbjörg Jónsdóttir formaður, Guðni Einarsson, Ragnar Lárusson, Egill Sigurðsson, Gunnar Eiríksson og Sveinn Sigurmundsson framkvæmdastjóri.
- Nautgriparæktin. Á fundinn er mætt stjórn Félags kúabænda á Suðurlandi ásamt Guðmundi Jóhannessyni ráðunauti BSSL.
Guðmundur fór yfir þá starfsemi sem fram fer á vegum BSSL sem tengist nautgriparæktinni sem er um það bil ¼ af starfssemi búnaðarsambandsins. Miklar umræður voru um starfsemina og framtíðarstefnu innan nautgriparæktaninar og samstarf kúabænda á Suðurlandi og Búnaðarsambandsins.
- Lög Búnaðarfélags Villingaholtshrepps. Stjórn gerir ekki athugasemdir og staðfestir lögin.
- Kosning í nefnd til endurskoðunar á ráðunautaþjónustunni. Formannafundur búnaðarsambandanna samþykkti tillögu þess efnis að skipa nefnd til að endurskoða og endurskipuleggja ráðgjafaþjónustu í landbúnaði. Nefndin skili tillögum til búnaðarþings 2010. BSSL skipi einn mann í nefndina. Ákveðið að fresta skipan í nefndina.
- Starfsemi BSSL. Sveinn fór yfir starfsemina framundan hjá Búnaðarsambandinu og fyrirtækjum þess.
Fundi slitið,
Guðni Einarsson