Sérstakir orlofsstyrkir úr Orlofssjóði BÍ til bænda á áhrifasvæði gossins
Vegna sérstakra aðstæðna hefur stjórn Orlofssjóðs BÍ ákveðið að styrkja bændur sérstaklega á áhrifasvæði eldgossins í Eyjafjallajökli. Hámarksfjárhæð orlfsstyrks hefur þannig verið hækkuð í kr. 82.500 fyrir bændur á skilgreindu áhrifasvæði gossins. Umsóknarfrestur er til 15. júní 2010.
Á heimasíðu BÍ er að finna úthlutunarreglur, umsóknareyðublað og þau tilboð og afslætti sem standa til boða.
Þar má nefna tilboð á Hótel Sögu og Hótel Íslandi, Ferðaþjónustu bænda, frímiða í þjóðleikhúsið, frían aðgang í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn, boð á vináttulandsleik Íslands og Liechtenstein, sem fram fer á Laugardalsvelli 11. ágúst 2010 og frímiða á leiki í Pepsí-deildinni svo eitthvað sé nefnt. Kynnið ykkur málið.
Eyðublað vegna sérstakra orlofsstyrkja til bænda á áhrifasvæði eldgossins – ATHUGIÐ umsóknarfrestur 15. júní 2010
Auglýsing um sérstaka orlofsstyrki
Tilboð og afslættir til félagsmanna BÍ sem nýta sér orlofsstyrki
———————————————
Almennar úthlutunarreglur Orlofssjóðs bænda