Aðalfundur BSSL 11. apríl 2014
Á síðasta stjórnarfundi Búnaðarsamband Suðurlands var ákveðið að stefna að aðalfundi þann 11. apríl næstkomandi. Nú í ár á fundurinn að vera í Árnessýslu. Nánari dagskrá og fundarstaður kemur síðar. Á stjórnarfundinum tók Guðbjörg Jónsdóttir aftur við formennsku af Ragnari Lárussyni sem hafði gegnt formennsku í hennar fjarveru.