Aðalfundur FKS 27. jan. 2004
AÐALFUNDUR FKS 2004
HALDINN 27. JANÚAR 2004 Að LAUGALANDI Í HOLTUM
Formaður Sigurður Loftsson setti fund kl. 12.40. Gerði tillögu um Gunnar Eiríksson sem fundarstjóra og bað Valdimar Guðjónsson að rita fundargerð.
Gat Sigurður þess í setningu að á næsta ári yrði félagið 20 ára gamalt.
- Skýrsla formanns. Farið yfir helstu mál ársins 2003. (Sjá skýrslu formanns í tölvutæku formi).
- Fundarstjóri las tillögu stjórnar um uppstillingarnefnd. Í henni eiga sæti; Grétar Einarsson Þórisholti, formaður, Halla Guðmundsdóttir Ásum og Þórir Jónsson , Selalæk.
- Reikningar
Reikningar lesnir og yfirfarnir af gjaldkera Jóhanni Nikulássyni.
Rekstartekjur ársins kr. 556.260 Sama upphæð til gjalda.
Rekstarafgangur kr. 109.367.
Eignir á bankareikn.kr. 472.441.
Reikningar bornir upp og samþykktir án athugasemda.
- Umræður um skýrslu formanns.
Þorfinnur á Spóastöðum þakkaði stjórn fyrir vel unnin störf og sérstaklega samstarfið við Búnaðarsambandið.
Sagði vegna fækkunar búa væri sífellt leitað leiða til hagræðingar á sem flestum sviðum. T.d. í sæðingum og öðru.
Bjarni Stefánsson í Túni spurði um stuðning við gæðanautakjöt og hvort sá stuðningur væri tekinn af verðskerðingargjaldi. Hann taldi það nokkuð annað en lagt var upp með þann sjóð í byrjun
- Áhrif alþjóðasamninga og inngöngu í ESB á íslenska nautgriparækt
Sigurgeir Þorgeirsson framkvæmdastjóri BÍ flutti erindi. Hann sagði hafa tekist að skilgreina stuðning við sauðfjárrækt sem grænar greiðslur, en það gæti þó ekki orðið að öllu leyti áfram. Höfuðverkurinn nú væri hvernig hægt væri að framkvæma stuðning við nautgriparæktina næstu ár. Hann sagði undanþáguákvæði varðandi tollastuðning e.t.v. varða Íslendinga mestu. Ef ekki næðust undanþágur þá mætti vænta verulegrar erlendrar samkeppni, sérstaklega í vinnsluvörum.
Hann sagði stuðning hjá ESB færast æ meira yfir á land frekar en beinan gripastuðning. Aftenging stuðningsins mun verða 2005, en hægt verður að framlengja um 2 ár. Megnið verður fært yfir í grænar greiðslur, úr svokölluðu bláa boxi. Lögð verður áhersla á byggðastefnu. Fært frá stærstu búum að hluta. Markmið að lækka verð mjólkur um 20 % á aðlögunartíma, en teknar verða upp beingreiðslur, sem bæta verðlækkunina að hluta, en slíkar greiðslur hafa ekki verið í mjólkurframleiðslu heldur greitt út á ræktun. Sigurgeir sagði kostinn við okkar kerfi vera hvað það væri einfalt. Nýjustu tillögur ESB kalla á gífurlegt eftirlitskerfi. Þessar breytingar eru hins vegar til að auka svigrúm innan ESB. Einnig að mæta breytingum innan WTO. Markmið að styrkjakerfið hafi sem minnst áhrif á hvað framleitt er. Reynt verður að láta hagkvæmni ráða.
Sigurgeir sýndi dæmi um finnskt kúabú með 150.000 lítra framleiðslurétt.
Margskyns styrkir eru þar, t.d. út á ræktun og dýr, harðbýlisstyrkir umhverfisstyrkir ofl.
Danir hafa nú ákveðið að taka 25% af búfjárgreiðslum út á land jarðarinnar.
Lækkun mjólkurverðs um 20% mun hafa áhrif. T.d. á dæmigert bú í Danmörku með yfir 1 milljón í mjólkurkvóta þýðir það kringum 5 milljónir ísl. kr. í tekjutap.
Óvissa er nú um samninga WTO. Varla um að ræða lausn nú fyrr en eftir tvö til þrjú ár. Til athugunar er, hvaða áhrif það muni hafa á reiknaðan stuðning við landbúnaðinn, ef horfið verður frá opinberri verðlagningu.
Sigurgeir taldi að líkindum verða hægt að koma stuðningi fyrir áfram án hruns greinarinnar. Hins vegar líklegt að tollverndin minnki og samkeppni aukist erlendis frá af þeim sökum.
- Af vettvangi Landssambands kúabænda
Snorri Sigurðsson framkvæmdastjóri LK. Snorri greindi frá stöðu samninga um nýjan mjólkursamning. Enn er allt á trúnaðarstigi og því ekki hægt að greina frá undirbúningsvinnunni sjálfri. Í undirbúningsnefndinnni eru 14 aðilar frá LK, BÍ, Landbúnaðarráðuneytinu, Fjármálaráðuneytinu, SAM, SA, ASÍ og BSRB. Þessi stóri hópur vinnur nú að skýrslul um stöðu og horfur í nautgriparækt og á næstu vikum er ráðgert að sjálf samningavinnan byrji.
Þá kom Snorri inn á stuðning við nautakjöt og hvernig stuðningurinn var fjármagnaður. Kúabændur voru hvattir til að nýta eigin sjóði, svo að ríkið gæti mögulega komið á móti síðar. Greitt var kringum 9 milljónir í stuðning á bestu flokka nautakjöts. Það fjármagn kom úr Framleiðnisjóði, Verðskerðingarsjóði og þróunarfé mjólkursamnings.
Í desember sl. tókst að auka sölu nautakjöts um 9% og hvað Snorri skýringuna m.a. felast í markaðsátaki kúabænda til að festa áramótin í sessi sem hátíðardag nautakjöts.
Snorri greindi jafnframt frá í erindi sínu því helsta sem unnið er að fyrir kúabændur um þessar mundir, s.s. endurskoðun kjötmatsins, skoðun á útflutningsmöguleikum á sæði og verðeftirliti með kjöti, lyfjum, kjarnfóðri og ýmsu fleiru.
Tekið kaffihlé.
Orðið laust um erindi og fleira.
Jón Viðar í Dalbæ kvaðst hafa efasemdir um að hafa gjaldskrá uppi i verktakavinnu. Verðlag virtist vera misjafnt milli landshluta. T.d . hærri taxtar að sjá í Eyjafirði. Lýsti annars ánægju sinni með LK síðuna.
Minntist á kálfaduft. Sagði því miður fyrir sitt leyti innflutt kálfaduft mun betra en það innlenda. Leystist fyrr upp og væri meðfærilegra. Kvað nauðsynlegt að framleiða innlent í sömu gæðum.
Birgir Guðmundsson mjólkurbússtjóri þakkaði boð á þennan fund. Hann svaraði spurningu Snorra um afurðir í flugvélum að dýrt væri að pakka í litlar pakkningar, en markaður lítill.
Hann sagði hvergi útbúið duft hér sem væri “instant”. Uppleysanleiki væri óneitanlega mun minni hérlendis á innlendu dufti.. Enginn vélbúnaður væri hinsvegar til hérlendis í slíkt og hann væri óhemju dýr.
Sigurlaug Leifsdóttir sagði verðlagningu í rúllun og fleiru misjafna og væri stundum viðkvæmt eða trúnaðarmál.
Sagðist hafa spurst fyrir um sölu kjöts til mötuneyta við Kárahnjúka. Þar hefðu þau hjónin komið að læstum dyrum og sagt að Bónus aðföng réðu þar algerlega ríkjum. Veldi þess næði því víða.
Sigurjón Hjaltason. Taldi margt óljóst í samningum framundan. Taldi einarða og “þráa “ samningamenn geta landað miklu. Einnig í alþjóðasamningum.
Daníel Magnússon í Akbraut sagði nauðsynlegt að hita kálfdrukkinn nógu mikið til að leysa hann upp.
Arnheiður á Guðnastöðum lýsti ánægju sína með “muuuu” herferðina og taldi hana vera að virka.
Sigurgeir Þorgreirsson sagði okkur eiga rétt á útflutningsbótum á alþjóðavísu enn, þó sá réttur hefði ekki verið nýttur. Hann taldi t.d. að hægt hefði verið að setja algert bann við innflutningi á írskum nautalundum um árið. Hægt hefði verið að standa á því og það hefður aðrir gert.
Lyfjaverðlagsnefnd er til. Hann sagðist vilja láta kanna verðlagningu á dýralyfjum. Kom inná eftirlit með neysluvatni. Nú væri í raun farið fram á úttekt einu sinni á ári á vatnsbólum Vildi koma því inná borð t..d mjólkureftirlitsmanna,eða skyldra aðila til að lágmarka kostnað hvers bónda.
Snorri taldi mjög mikilvægt að ávallt væru íslenskar mjólkurvörur í millilandaflugvélum og að kúabændur ættu að gera kröfu til flugfyrirtækja og íslenska mjólkuriðnaðarins að hafa ávallt íslenskar mjólkurvörur um borð.
Þá svaraði hann gagnrýni á markaðsherferð Markaðsnefndar mjólkuriðnaðarins, s.k. MUU-herferð. Hann hvað mælingu Gallup á herferðina athygliverða. Hæsta mæling sem gerð hefur verið og jafnframt lægsta! Markhópurinn væri ungt fólk í þéttbýli, en sumt eldra fólk væri hinsvegar ekki jafn hrifið af auglýsingunni. Nú sé verið að skoða hvort breyta þurfi auglýsingunni.
Varðandi hugsanlegan innflutning mjólkurvara, þá sagði hann að kúabændur ættu að gera kröfu til ríkisins að sömu framleiðslukröfur til bænda viðkomandi útflutningslands og hérlendis væri gert. Ljóst væri að íslensk mjólkurframleiðsla byggi við strangari kröfur en víðast annarsstaðar og lítið réttlæti væri að heimila innflutning mjólkurvara frá löndum þar sem lítið væri hugsað um atriði eins og dýravelferð.
Hann sagði jafnframt að nýlega hefði hann, með hópi bænda, heimsótt sláturhús í Danmörku og menn hefðu verið hissa að húsið hefði ESB vottun. Þetta væri umhugsunarefni fyrir okkur og gæfi ástæðu til að fara yfir þær kröfur sem gerðar væru til slátrunaraðstöðu hérlendis.
- Kosningar.
Grétar Einarsson í Þórisholti las upp tillögur uppstillingarnefndar.
Tillaga uppstillingarnefndar borinn undir fundinn, óbreytt. Samþykkt án mótatkvæða.
FÉLGAGSRÁÐ FÉLAGS KÚABÆNDA Á SUÐURLANDI KOSIÐ 2004 TIL TVEGGGJA ÁRA.
Ágúst Dalkvist Eystra Hrauni
Ólafur Kristjánsson Geirakoti
Arnar Bjarni Eiríksson Gunnbjarnarholti.
Jóhann Nikulásson Stóru Hildisey
Grétar Einarsson Þórisholti
Sigurður Loftsson Steinsholti
Katrín Birna Viðarsd. Ásólfsskála
Birna Þorsteinsd. Reykjum
Kristinn Guðnason Þverlæk.
Varamenn.
Sveinn Ingvarsson Reykjahlíð
Björn Harðarson Holti
Ágúst Sæmundsson Bjólu
FULLTRÚAR Á AÐALFUND BSSL.
Sigurður Loftsson Steinsholti
Gunnar Kr. Eiríkssson Túnsbergi
Ágúst Sæmundsson Bjólu
Ágúst Dalkvist Eystra Hrauni
Arnheiður Dögg Einarsdótttir Guðnastöðum
Varamenn
Valdimar Guðjónsson Gaulverjabæ
Birna Þorsteinsdótttir Reykjum
Bertha Kvaran Miðhjáleigu
Sigurjón Eyjólfsson Pétursey.
FULLTRÚAR Á AÐALFUND LK 2004.
Sveinn Ingvarsson Reykjahlíð
Einar Haraldsson UrriðafossI
Grétar Einarsson Þórisholti
Sigrún Ásta Bjarnad. Stóru Mástungu
Sigurlaug Leifsdóttir Nýjabæ
Valdimar Guðjónsson Gaulverjabæ
Jóhann Nikulásson Stóru Hildisey.
Katrín Birna Viðarsdóttir Ásólfsskála
Birna Þorsteinsdóttir Reykjum.
Varamenn.
Gunnar Eiríksson Túnsbergi
Gunnar Sverrisson Hrosshaga
Sigurjón Hjaltason Raftholti
Björn Harðarson holtil
Þórarinn Eggertsson Hraungerði
Ólafur Þorri Gunnarsson Bollakot
Þorsteinnn Markússson Eystra Fíflholti
Ólafur Helgason Hraunkoti
Sigurður Loftsson Steinsholti
Skoðurnarmenn reikninga
Páll Lýðsson Litlu Sandvík
Guðmundur Lárusson Stekkum
Til vara.
Rútur Pálsson Skíðbakka
Daníel Magnússon Akbraut
- ÖNNUR MÁL
Karl Jónsson og Daníel Magnússon sögðu frá hugmyndum sínum og tillögu varðandi geldstöðu og afurðafóðrun. Fjallaði hún um að hraða efnagreiningum á heyi.
Einnig að vísbeningar sýndu að með blöndun á kalsíumklóríði saman við gróffóður batni heilsufar mjólkurkúa til muna.
Guðmundur Lárusson taldi vert að skoða þetta mál , en rétt væri að tilraunastöð okkar kannaði slíkt. Það væri rétti farvegurinn. Nokkrar fullyrðingar kæmu fram í tillögunni sem svona fundur gæti vart samþykkt eða synjað.
Tillögu þeirra félaga vísað til stjórnar, til frekari úrvinnslu.
Enginn á móti.
Arnheiður á Guðnastöðum sagði kúakalk nú á þrotum í landinu svo til vandræða horfir fyrir kúabændur.
Sæunn bóndi á Lágafelli. Vildi fá könnun á meðal sláturleyfishafa á verðlagningu ungkálfa. Hún væri mjög misjöfn.
Sigurður Loftsson formaður sleit síðan fundi og þakkaði fundarmönnum góða fundarsetu.
Valdimar Guðjónsson,
fundarritari