Allir sláturleyfishafar búnir að birta verð
Allir sláturleyfishafar hafa nú birt verðskrár sínar fyrir sauðfjárslátrun í haust. Verð eru að mestu óbreytt frá síðasta ári hjá öllum sláturleyfishöfum utan að svokölluð geymslugjöld verða ekki greidd af sláturleyfishöfum í ár eins og verið hefur. Geymslugjöld eru 35,25 krónur á hvert kíló af öllu kindakjöti en nokkuð mismunandi er hvernig þeirri lækkun er dreift hjá sláturleyfishöfum. Í einhverjum tilvikum er lækkunin einungis á dilkakjöti sem gerir að verkum að hún er öllu meiri, eða allt að 39 krónur á kíló.
Hér að neðan eru hlekkir á allar verðskrár og í einhverjum tilfellum skýringar sláturleyfishafanna með þeim, s.s. varðandi greiðslukjör o.fl. Auk þess má þar einnig sjá viðmiðunarverðskrá Landssamtaka sauðfjárbænda.
Verðskrá Sláturfélags Vopnafjarðar
Viðmiðunarverðskrá Landssamtaka sauðfjárbænda