Ályktun frá FKS vegna verkfalls dýralækna hjá MAST
Stjórn Félags kúabænda á Suðurlandi vekur athygli á ófremdarástandi vegna verkfalls dýralækna hjá MAST (Matvælastofnun). Það hefur nú staðið síðan 20. apríl sl. Skorað er á deiluaðila að sinna samningsvinnu með lausn í huga nú þegar. Mjög þrengir að gripum í fjósum bænda. Vegna tíðarfars verður gripum ekki sleppt í haga að sinni og betri hey ætluð nautgripum eru allvíða á þrotum. Erfitt verður því að framfylgja löggjöf um dýravelferð vegna þessa ástands ef svo heldur áfram. Að ekki sé minnst á heilbrigðisvandamál hjá gripum sem alltaf geta komið upp. Þetta vandamál mun að auki teygja sig áfram næstu mánuði fram í tímann þó deilan leysist, vegna uppsafnaðs vanda síðustu vikur síðan slátrun stöðvaðist. Einnig er tekjustreymi greinarinnar ekki til staðar með tilheyrandi kostnaði og erfiðleikum í rekstri þeirra sem hafa aðaltekjur af kjötframleiðslu. Reikningar halda áfram að berast.
Ef fyrirliggjandi kjötskorti verslana og neytendamarkaðs á afurðum nautgripa á að leysa með undanþágum er þess krafist að innlend framleiðsla sitji við sama borð og innflutt.
Þannig samþykkt 1.júní 2015.
Stjórn félags kúabænda á Suðurlandi.