Auglýsing um takmarkanir á flutningum sláturfjár
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hefur birt auglýsingu um takmarkanir á sláturfjár innan og milli sauðfjárveikivarnarsvæða þar sem fram kemur að bannað er að flytja til slátrunar á Hornafirði fullorðið fé úr Mýrdals- og Skaftártunguhólfum og einnig af svæðum norðan Hamarsár. Sama gildir um fullorðið fé úr varnarhólfum vestan Þjórsár.
Auglýsinguna í heild sinni má sjá með því að smella á lesa meira.
AUGLÝSING
um takmarkanir við flutningi sláturfjár innan og milli sauðfjárveikivarnarsvæða.
1. gr.
1. Óheimilt er að flytja til slátrunar á Hornafirði fullorðið fé úr Mýrdals- og Skaftártunguhólfum og einnig af svæðum norðan Hamarsár. Sama gildir um fullorðið fé úr varnarhólfum vestan Þjórsár.
2. Óheimilt er að flytja til slátrunar á Vopnafirði fullorðið fé úr Jökulsárhlíð, Jökuldal og svæðum sunnan Jökulsár á Brú.
3. Óheimilt er að flytja til slátrunar á Kópaskeri fullorðið fé af svæðum vestan Jökulsár á Fjöllum. Sama gildir um sláturfé úr Jökulsárhlíð, Jökuldal og svæðum sunnan Jökulsár á Brú.
2. gr.
Með brot gegn auglýsingu þessari skal farið skv. 30. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, með síðari breytingum.
3. gr.
Auglýsing þessi er birt skv. heimild í lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim ásamt síðari breytingum og öðlast þegar gildi. Jafnframt er úr gildi felld auglýsing um bann við flutningi sláturfjár yfir sauðfjárveikivarnarlínur nr. 635/2001.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 26. júní 2008.
F. h. r.
Sigurgeir Þorgeirsson.
Arnór Snæbjörnsson.