Breytingar á stjórn Félags kúabænda á Suðurlandi
Þórir Jónsson formaður Félags kúabænda á Suðurlandi hefur látið af störfum sem formaður félagsins af heilsufarsástæðum. Ritari félagsins og varaformaður, Samúel U. Eyjólfsson í Bryðjuholti, mun gegna störfum formanns fram að aðalfundi félagsins sem haldinn verður væntanlega í lok janúar nk. en þá verður kosinn nýr formaður.