Breytt skráningarform á kynbótasýningum.
Búnaðarsamband Suðurlands sér ekki um skráningar á kynbótasýningar í ár eins og undanfarin ár. Nýtt fyrirtæki Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins (RML) tók yfir ráðunautaþjónustu á landsvísu og þar með kynbótasýningar. Er það von okkar að þetta verði lítil breyting fyrir eigendur/sýnendur kynbótahrossa en samhliða því var tekið upp nýtt skráningarform. Þar er hægt að skrá og greiða ef farið er inn á síðuna www.worldfengur.com Allar nánari upplýsingar er hægt að fá hjá RML í síma 516-5000 eða senda póst á netföngin lr@rml.is og rml@rml.is
Sýningar á Suðurlandi:
Dags. Staður
6.5- 10.5 Selfoss
13.5-17.5 Víðidalur
21.5-24.5 Sörlastaðir
27.5-31.5 Selfoss
27.5-28.5 Hornafjörður
3.6-14.6 Hella
Verð er það sama og í fyrra eða 18.500 kr. fyrir fullnaðardóm og 13.500 kr. fyrir byggingar/hæfileikadóm.