Burður og burðarhjálp
Námskeið í burðarhjálp verður haldið á Stóra Ármóti næstkomandi þriðjudag, þann 6. október. Námskeiðið er haldið á vegum endurmenntunardeildar Landbúnaðarháskólans og kennari er Grétar Hrafn Harðarson, dýralæknir og tilraunastjóri á Stóra-Ármóti.
Eins og kúabændur vita er hlutfall dauðfæddra kálfa á bilinu 13-14% á íslenskum kúabúum. Hlutfallið er óásættanlegt og er bændum og stéttinni í heild afar dýrt. Markmið námskeiðsins er að gera bændur hæfari í að taka réttar ákvarðanir þegar kemur að burði og burðaraðstoð hjá kúm. Á námskeiðinu verður farið yfir undirbúning kýrinnar fyrir burð, helstu sjúkdóma kringum burð, eðlilegt burðarferli, burðarerfiðleika, burðarhjáp og meðferð ungkálfa.
Staður og stund: Þri. 6. október kl. 13:00-17:00 á Tilraunabúi LBHÍ – Stóra Ármóti í Flóa.
Verð: 8.500 kr
Skráningar: endurmenntun@lbhi.is eða í síma 433 5000/ 843 5302
Staðfestingargjald: Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra 2.500 kr (óafturkræft) á reikninginn 1103-26-4237, kt. 411204-3590. Skrá nafn þátttakanda í skýringar og senda kvittun á endurmenntun@lbhi.is
Námskeiðshaldarar minna á Starfsmenntasjóð bænda – www.bondi.is