Dagur sauðkindarinnar í Skeiðvangi

Félag sauðfjárbænda í Rangárvallasýslu hélt upp á dag suðkindarinnar í Skeiðvangi Hvolsvelli 17. október sl. Þetta er í 8. sinn sem dagurinn er haldinn og voru þar saman komnir efstu hrútar úr sýningum í hverri sveit milli Þjórsár og Markarfljóts og voru þeir dæmdir á ný.
Efstu lambhrútarnir urðu:
1. Nr. 43 frá Árbæjarhjáleigu með 89.5 heildarstig. F: Bursti 12-912. (sjá mynd Sumarliði Erlendsson, Skarði og Brynjar Gísli Stefánsson, Þjóðólfshaga halda í hrútinn).
2. Nr. 358 frá Saurbæ með 88 heildarstig. F: Babar 14-078 .
3. Nr. 11 frá Djúpadal með 88 heildarstig. F: Snævar 12-333 .
Veturgamlir hrútar:
1. 14-354 Farsæll frá Hemlu með 38.5 stig BML og 90 heildarstig F: Fannar 10-488 (sjá mynd Vignir Siggeirsson og Lovísa Herborg Ragnarsdóttir bændur í Hemlu)
2. 14-520 Fannar frá Kálfholti með 37.5 stig BML og 90 heildarstig. F: Bellman 13-193 Álfhólum.
3. 14-138 Hnökri frá Vestra Fíflholti með 37.5 BML og 89 heildarstig. F: Bekri 12-911
- Besti lambhrúturinn í eigu Kristins í Árbæjarhjáleigu. Sumaliði í Skarði og Brynjar í Þjóðólfshaga.
- Helgi og Símon í Austvaðsholti með bestu lambgimbrina
- Vignir og Lovísa Hemlu með besta veturgamla lambhrútinn
Gimbrar.
1. Nr. 5126 frá Austvaðsholti með 9.5 fyrir frampart 19 læri og heildarst. 47.5. (sjá mynd Helgi Benediktsson og Símon Helgi Helgason í Austvaðsholti).
2. Nr. 666 frá Teigi með 9.5 fyrir framp. 19 læri og heildarst. 46.5
3. Nr. 38 Frá Skíðbakka 1 með 9.5 fyrir framp. 19 læri og heildarst. 46.5.
Gestir völdu litfegursta lambið og var valin svartflekkótt gimbur frá Brekku í þykkvabæ (sjá mynd en Birkir Hreimur Birkisson, Brekku heldur í lambið).
Verðlaun voru veitt fyrir 5 vetra ær sem standa efstar í kynbótamati í sýslunni. 4 af 5 efstu ánum voru frá Skarði. Efsta ærin var 10-110 frá Skarði með 118.5 stig.
Veitt voru verðlaun fyrir þyngsta dilk úr sýslunni lagðan inn hjá SS nú í haust. Hann var frá Sigrúnu Brynju Haraldsdóttur Svanavatni og vó 29 kg og DU3.
Þá var útnefnt ræktunarbú Rangárvallasýslu 2014. Félagsbúið Ytri Skógum (sjá mynd Sigurður Sigurjónsson í Ytri-Skógum tók við verðlaunum).
- Sigurður Sigurjónsson tekur við viðurkenningu fyrir ræktunarbú sýslunnar.
- Birkir Hreimur í Brekku tekur við viðurkenningu fyrir litfegursta lambið.
Styrktaraðilar sýningarinnar voru Húsasmiðjan Hvolsvelli, SS sem gaf gestum kjötsúpu og fjörulæri fyrir þyngsta dilkinn. Aurasel og Fóðurblandan lánuðu grindur.
Verðlaunagripir voru útskornir af Ragnhildi Magnúsdóttur í Gígjarhólskoti og mynd máluð af Gunnhildi Jónsdóttur Berjanesi.
Í lokin voru boðin upp 2 lömb sem voru gefin til að standa undir kostnaði.
Gestir á sýningunni voru um 300.