Egill Sigurðsson Berustöðum
Látinn er Egill Sigurðsson Berustöðum í Ásahreppi. Hann fæddist að Stokkalæk á Rangárvöllum en hóf búskap ásamt konu sinni Guðfríði Erlu Traustadóttur að Berustöðum 1979. Egill tók virkan þátt í félagsmálum bænda og sveitastjórnarmálum. Egill var í stjórn Mjólkurbús Flóamanna 2003-2005, í stjórn MS-Auðhumlu frá 2005 til 2018, þar af sem stjórnarformaður Auðhumlu frá 2007 og Mjólkursamsölunnar frá 2008. og sat á Búnaðarþingi í mörg ár. Hann var kosinn í stjórn Búnaðarsambandsins árið 2000 og sat í 12 ár eða til ársins 2012, lengst af sem varaformaður. Hann var alltaf mjög virkur, fljótur að setja sig inn í mál og lét gjarnan til sín taka. Það var mikill styrkur fyrir Búnaðarsambandið að hafa hann í stjórn og hann kom mörgum góðum málum til leiðar sem Búnaðarsambandið er þakklátt fyrir. Samúðarkveðjur til eftirlifandi eiginkonu hans, barna, aðstandenda og annara.