Erfðabreytt aðföng í landbúnaði
Þuríður Backman, alþm., hefur lagt fram eftirfarandi fyrirspurn til landbúnaðarráðherra um erfðabreytt aðföng í landbúnaði:
1. Hvað líður innleiðingu reglugerða Evrópuþingsins og ráðsins 1829/2003/EB, um erfðabreytt matvæli og fóður, og 1830/2003/EB, um rekjanleika og merkingar á erfðabreyttum lífverum og rekjanleika á matvæla- og fóðurvörum sem framleiddar eru af erfðabreyttum lífverum?
2. Telur ráðherra ásættanlegt að íslenskir bændur hafi, ólíkt bændum í öðrum Evrópulöndum, ekki möguleika á að velja á milli venjulegs og erfðabreytts fóðurs vegna skorts á merkingum?
3. Telur ráðherra ásættanlegt hve hátt hlutfall af innfluttum maís og soja í fóðri og til fóðurframleiðslu er erfðabreytt?
4. Telur ráðherra að notkun erfðabreytts fóðurs geti skaðað markaðssetningu íslenskra landbúnaðarvara erlendis sem töluverð vinna og fjármagn hefur verið lagt í á grundvelli þess að þær séu náttúrulegar og hreinar?
5. Er ráðherra kunnugt um að evrópskar smásöluverslanir bregðast í sívaxandi mæli við kröfum neytenda um að búfjárafurðir séu ekki af búfé sem hefur verið alið á erfðabreyttu fóðri með því að úthýsa slíkum vörum?
6. Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að fylgt verði fordæmi Norðmanna í vörnum við hættum af notkun erfðatækni í landbúnaði en Norðmenn girða fyrir innflutning á erfðabreyttu fóðri, hafna umsóknum um ræktun erfðabreyttra plantna og starfrækja óháða vísindastofnun um rannsóknir á áhrifum erfðatækni?
7. Mun ráðherra beita sér fyrir upplýstri umræðu um áhrif erfðabreytts landbúnaðar á umhverfi og heilsufar?