Erlend lán heimilanna komin í 108 milljarða króna
Erlend lántaka heimilanna í landinu hefur færst gríðarlega í vöxt á undanförnum þremur árum og var í september komin í 108 milljarða króna en aukningin á fyrstu níu mánuðum ársins nam 57,6%. Af þessum 108 milljörðum fóru 25,2 milljarðar til íbúðalána. Skýringin á áhuga heimilanna á erlendum lánum er einföld: þessi lán bera lægri vexti en innlendu lánin.
Erlendu lánin eru óverðtryggð en nær öll lán sem fólk tekur til fasteignakaupa hér á landi eru verðtryggð. Sá sem tekur erlent lán til íbúðakaupa greiðir í dag 4-5,5% nafnvexti, en sá sem tekur venjulegt íbúðalán hjá bönkunum greiðir hins vegar um 12% vexti þegar tekið hefur verið tillit til vaxta og verðtryggingar.
Athyglisvert er að skoða samanburð á óverðtryggðum erlendum húsnæðislánum sem Glitnir er að bjóða. Ef þetta lán er tekið í íslenskum krónum ber það 15,75% vexti. Ef lánið er hins vegar tekið í erlendri mynt er það með 5,67% vöxtum.
Hafa ber hins vegar í huga í þessu samhengi að talsverð gengisáhætta fylgir erlendu lánunum. Sveiflur á gengi krónunnar geta vissulega leitt til þess að höfuðstóll lánsins lækki, en þær geta einnig leitt til hækkunar á höfuðstól og þar með þyngri greiðslubyrðar. Til dæmis má nefna að gengi krónunnar var mjög sterkt í lok árs 2005 en nokkrum vikum síðar fór það að falla og féll á tveimur mánuðum um 28%.
Einhver lækkun á „erfiðum sölustöðum“
Reikna má með því að á næstunni verði einhver lækkun á verði fasteigna „á erfiðari sölustöðum“, segir Jón Guðmundsson hjá Fasteignamarkaðnum, en breytingar á íbúðalánavöxtum og ummæli forsætisráðherra hafa orðið til þess að dregið hefur úr eftirspurn eftir fasteignum. Talið er að erfiðast verði að selja íbúðir sem standa við ystu mörk byggðarlaga. „Menn spá því að þegar komið verður fram undir 2009 verði fasteignaverð í sömu krónutölu og í ársbyrjun 2007,“ segir Jón.
Nánar í Morgunblaðinu í dag, 15. nóvember 2007 / Egill Ólafsson