Fer forðagæsluskýrslan á réttan stað?
Nokkuð hefur borið á því að forðagæsluskýrslur hafa skilað sér á skrifstofu BSSL. Í haust var Óðinn Örn Jóhannsson ráðinn búfjáreftirlitsmaður á Selfossi. Óðinn hefur verið með skrifstofuaðstöðu hjá Búnaðarsambandinu en á haustmánuðum flutti hann aðsetur sitt í aðalskrifstofur MAST. Nýtt heimilsfang er því, Matvælastofnun, Austurvegi 64, 800 Selfoss.
Skila þarf inn skýrslum fyrir 20. nóvember.