Fóðrun sauðfjár
Námskeið um fóðrun sauðfjár á mismunandi tímabilum og aldursskeiðum, verður haldið á Hvanneyri 9. apríl n.k. Kennari á námskeiðinu er Eyjólfur Kristinn Örnólfsson og er námskeiðið haldið að hluta til hjá Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) á Hvanneyri auk þess sem farið er í fjárhús LbhÍ á Hesti þar sem fóðrun mismunandi hópa er skoðuð og rædd.
Námskeiðið er sérstaklega ætlað sauðfjárbændum og þeim sem tengjast sauðfjárrækt en er einnig opið öðrum.
Á þessu fóðrunarnámskeiði verður sérstaklega horft til fóðrun gemlinga, bæði innifóðrun og beit, og farið yfir möguleg viðbrögð og fyrirbyggjandi aðgerðir vegna áhrifa breytilegs árferðis á heyskap og beit. Horft verður á niðurstöður skýrsluhaldsins með tilliti til árangurs innifóðrunar, svo sem frjósemi og fallþunga. Stuðst verður jöfnum höndum við nýjustu rannsóknarniðurstöður og sígildan fróðleik.
Nánari upplýsingar og skráning eru á endurmenntun.lbhi.is
Námskeiðið er haldið í samstarfi við Búnaðarsamtök Vesturlands
Kennsla: Eyjólfur Kristinn Örnólfsson sérfræðingur hjá LbhÍ
Tími: Laugardaginn 9. apríl kl. 10 – 15
Staður: Hjá LbhÍ á Hvanneyri og á fjárbúinu Hesti í Borgarfirði
Verð: 29.000 kr. (Innifalið í verði eru kaffiveitingar og hádegisverður í mötuneyti skólans á Hvanneyri)
Minnt er á Starfsmenntasjóð bænda sem vistaður er hjá Bændasamtökum Íslands (www.bondi.is)